09 Sep 2010 
Þjónustuvefur » Spurt og svarað » Hver er munurinn á SSL lyklum?
 Hver er munurinn á SSL lyklum?
lausn Dacoda er söluaðili fyrir allar tegundir öryggislykla frá Thawte og GeoTrust. Til eru ýmsar gerði öryggislykla og hér fyrir neðan er stutt lýsing á því hver munurinn er á milli þessara lykla:

1. Domain validation (Thawte SSL123, GeoTrust QuickSSL og RapidSSL)

Úttektarferli: Sendur er póstur til tengiliðs léns og hann beðinn um að smella á tengil til að staðfesta að hann beri ábyrgð á léninu. Úttektarferli tekur frá 1-2 daga.
Dulkóðun: Allt að 256-bit

Þessi lykill hentar ef það þarf einungis að dulkóða upplýsingar, t.d. viðkvæmar persónuupplýsingar eða kreditkortanúmer. Viðskiptavinur eða notandi vefs getur ekki verið viss um að fyrirtæki sem hann verslar við sé í raun og veru til eins og með öðrum öryggislyklum.

2. Full organization validation (Thawte SSL Web Server Certificates og GeoTrust True BusinessID)

Úttektarferli: Sendur er póstur til tengiliðs léns og hann beðinn um að smella á tengil til að staðfesta að hann beri ábyrgð á léninu. Að auki er nafni fyrirtækis og símanúmeri flett upp í opinberum skrám til að athuga hvort það sé alveg örugglega til. Hringt er í tengilið fyrirtækis og hann beðinn um að staðfesta að fyrirtækið sé til munnlega. Úttektarferli tekur frá 1-3 daga ef fyrirtæki er skráð.
Dulkóðun: Allt að 256-bit

Þessi lykill hentar fyrir ýmsa notkun og þá sérstaklega fyrir vefverslanir sem taka á móti kreditkortum. Sum kortafyrirtæki gera kröfu um að það sé notaður að lágmarki þessi tegund lykils. Notendur geta verið vissir um að fyrirtæki sem verið er að versla við sé til ef þeir hafa þekkingu til að kanna það.

3. Full organization validation + lágmarksdulkóðun (Thawte SGC SuperCert)

Úttektarferli: Sendur er póstur til tengiliðs léns og hann beðinn um að smella á tengil til að staðfesta að hann beri ábyrgð á léninu. Að auki er nafni fyrirtækis og símanúmeri flett upp í opinberum skrám til að athuga hvort það sé alveg örugglega til. Hringt er í tengilið fyrirtækis og hann beðinn um að staðfesta að fyrirtækið sé til munnlega. Úttektarferli tekur frá 1-3 daga ef fyrirtæki er skráð.
Dulkóðun: Allt að 256-bit og lágmark 128-bit

Þessi lykill hentar fyrir alla dulkóðun og eykur öryggi með því að setja ákveðna lágmarksdulkóðun og er því nánast óbrjótanlegur. Algengt er að notast sé við þessa tegund lykla í heimabönkum og stærri netverslunum.


Efni greinar:
Númer á greinar:12
Búið til: 28 Jan 2009 12:08 AM

 Þetta svar leysti vandann  Þetta svar leysti ekki vandann

 Til baka
 Innskrá [Gleymt lykilorð] 
Netfang:
Lykilorð:
Muna eftir mér:
 
 Leita
 Valkostir greinar
Heim | Nýskráning | Senda beiðni | Spurt og svarað | Lausn vandamála | Fréttir | Skrár
Tungumál:

Þjónustuvefur keyrir á hugbúnaði frá Kayako eSupport v3.30.02